
Starfsfólk óskast til starfa í íbúðakjarna fyrir fólk með fötlun.
Unnið á breytilegum vöktum: dag-, kvöld-,nætur- og helgarvaktir.
Um er að ræða tvær stöður stuðningsfulltrúa 1, um er að ræða 75% starfshlutfall
Sporhamrar 5 er íbúðakjarni þar sem fimm einstaklingar með fötlun búa.
Þar er veitt er sólarhringsþjónusta auk þess sem íbúðakjarninn sér um utankjarnaþjónustu við einstaklinga í sjálfstæðri búsetu.
Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn. Þjónandi leiðsögn byggir á einstaklingsmiðaðri nálgun, þar sem samskipti milli starfsfólks og þjónustuþega eru þungamiðjan. Þjónustan miðar að því að efla færni, auka sjálfstæði og lífsgæði íbúa – og er markmiðið að veita ávallt framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
-Einstaklingsmiðuð og sveigjanleg aðstoð við allar athafnir daglegs lífs
-Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
-Hvetja og styðja til sjálfsstæðis og félagslegrar virkni
-Taka þátt í þróunarstarfi sem tekur mið af ákvörðunarstuðningi við íbúa
-Vera þátttakandi í teymisvinnu, þar sem þjónusta við íbúa er í fyrirrúmi
Hæfniskröfur
-Góð almenn menntun
-Þekking og reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum
-Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
-Stundvísi og heiðarleiki
-Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
-Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
-Góð íslenskukunnátta -Bílpróf
Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Frekari upplýsingar um starfið
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurgeir Birgisson í síma 823-0109 eða sigurgeir.birgissoneykjavik.is
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags.