Við leitum að sjálfstæðum og skipulögðum starfsmanni með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslustarf í Lyfju Seyðisfirði. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun.
Hlutverk og ábyrgð:
Hvaða hæfni þarft þú að hafa?
Starfið:
Um hlutastarf er að ræða og vinnutími er samkvæmt samkomulagi á opnunartíma verslunar. Einnig er möguleiki á sumarstarfi.
Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 18 ára aldri.
Hvers vegna Lyfja?
Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að auka lífsgæði og efla heilsu. Við rekum 42 verslanir hringinn í kringum landið auk Lyfju Heyrnar og lyfjaskömmtunar. Hjá okkur starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflingu, vinnur að vellíðan og tryggir lyfjaöryggi. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu og stöðuga nýsköpun.
Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsfólk Lyfju nýtur góðra kjara á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1, sem öll eru hluti af Festi hf.
Nánari upplýsingar veitir Inga Sæbjörg Magnúsdóttir, lyfsali Lyfju Egilsstöðum í síma 471 1273 eða á ingam@lyfja.is
Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.