Leikskólinn Tröllaborgir leitar að iðjuþjálfa, þroskaþjálfa, leikskólakennara, sérkennara eða einstaklingi með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi til að starfa í stoðþjónustuteymi skólans. Um er að ræða ótímabundna ráðningu í 80–100% starfshlutfalli. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf 1. september 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Daglegt líf í Tröllaborgum snýst um leik, athafnir, verkefni og samskipti sem miða að því að gefa börnunum fjölbreytt tækifæri til að læra, helst með því að uppgötva og reyna sjálf en stundum með dyggri aðstoð annarra. Lífsleikni í leikskóla eru áherslur Tröllaborga og byggir sú hugmyndafræði á kenningum ýmissa fræðimanna sem snúa að mannrækt og siðferðilegu gildismati í samfélagi manna og þeirri trú að efla og styrkja hið góða í hverjum einstaklingi bæði börnum og fullorðnum. Lögð er áhersla á að túlka lífsleiknina sem hugsjón sem þurfi að flæða yfir allt starf frekar en sem námsgrein innan skólans. Einnig er lögð áhersla á læsi og jóga.
Einkunnarorð skólans eru „Hugur- hjarta - hönd“.
Skólinn hefur tvær starfsstöðvar; að Tröllagili 29 og í Árholti Háhlíð 1
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://trollaborgir.karellen.is
Helstu verkefni eru:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veita Anna Egilsdóttir, skólastjóri í síma 469 4700 og 8224892 netfang: annaegils@akmennt.is og Harpa Hauksdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 469 4707, netfang: harpahauks@akmennt.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar; www.akureyri.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2026.