Laus er til umsóknar 70% staða umsjónarkennara í yngri deild við Hríseyjarskóla. Um er að ræða tímabundið starf með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Ráðið er í starfið frá 1. desember 2026 til 31. júlí 2027.
Hríseyjarskóli er samrekinn leik- og grunnskóli með 15 nemendur í 2.-10. bekk. Framtíðarsýn skólans er að vera lærdómssamfélag þar sem nemendur, foreldrar og starfsmenn eru virkir þátttakendur og að allir sem komi skólanum á einn eða annan hátt, átti sig á þeim forréttindum sem smæð samfélagsins er og nálægðin við náttúruna býður uppá.
Skólinn er grænfána- og heilsueflandi skóli og er að innleiða uppbyggingarstefnuna.
Einkunnarorð skólans eru Hríseyjarskóli – skapandi samfélag.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.hriseyjarskoli.is
Ert þú einstaklingurinn sem við leitum að og langar til að vinna í litlu samfélagi? Hér er einstakt tækifæri til að starfa í fámennum skóla þar sem kennt er í fámennum hópum til að mæta hverjum nemanda þar sem hann er staddur námslega.
Við leitum að metnaðarfullum kennara sem er tilbúinn að starfa með okkur og getum aðstoðað við að finna húsnæði.
Helstu verkefni eru:
Kennari sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórunn Arnórsdóttir skólastjóri í síma 891-7929, eða í netfanginu thorarno@akmennt.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 18. nóvember 2026