Vilt þú taka þátt í spennandi breytingum? Samkaup leitar að grafískum hönnuði sem brennur fyrir markaðsmálum.
Verkefnin eru fjölbreytt þvert á vörumerki Samkaupa: Nettó, Prís, Kjörbúðina, Krambúðina, SPAR, 10-11 og Heimkaup. Fyrirtækið stendur á spennandi tímamótum í þróun á ásýnd og upplifun vörumerkjanna og þú færð að móta það með okkur.
Ef þú ert kraftmikil manneskja með frumkvæði, skoðanir á markaðsmálum og vilt starfa í lifandi og hröðu samkeppnisumhverfi þá hvetjum við þig til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Fríðindi í starfi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sædís Kristjánsdóttir, mannauðsstjóri saedis@samkaup.is
Samkaup hefur hlotið Menntasprota atvinnulífsins, Hvatningarverðlaun jafnréttismála og auk þess hlotið jafnlaunavottun Jafnréttisstofu.
Samkaup rekur 62 verslanir víðsvegar um landið. Þær spanna allt frá lágvöruverðsverslunum til þægindaverslana. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru: Nettó, Kjörbúðin, Prís, SPAR, Krambúðin og 10-11. Hjá félaginu starfa um 1400 starfsmenn í um 650 stöðugildum.
Samkaup státar af öflugri jafnréttisstefnu sem nær ekki einungis til jafnréttis kynjanna heldur beinist einnig að hinsegin starfsfólki, erlendu starfsfólki og starfsfólki með skerta starfsgetu. Jafnréttisstefnan kallast Jafnrétti fyrir alla – Samkaup alla leið! og er stefna sem er unnið markvisst eftir á öllum starfsstöðvum Samkaupa.