Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitar að starfsfólki til starfa neyðarskýlum Reykjavíkurborgar. Unnið er á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum. Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Hlutverk og meginmarkmið neyðarskýlanna er að veita heimilislausum karlmönnum með miklar og flóknar þjónustuþarfir tímabundið skjól og viðeigandi aðstoð. Markmið þjónustunnar er að mæta þörfum dvalargesta á heildrænan og einstaklingsmiðaðan hátt. Hugmyndafræði skaðaminnkunar skal vera höfð að leiðarljósi í þjónustu við gesti neyðarskýla Reykjavíkurborgar.
Í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og velferðarstefnu er lögð áhersla á að starfsstaðir velferðarsviðs endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum því fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Eflingar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Emil Örvar Jónsson í netfangið emil.orvar.jonsson@reykjavik.is.