Holt er fimm deilda leikskóli, staðsettur í tveimur húsum (Stóra-Holt og Litla-Holt) í Völvufelli 7-9 í Breiðholti. Í starfinu er lögð áhersla á málörvun og fjölmenningu. Við erum samstarfsaðilar í þróunarverkefninu „Markviss málörvun í Fellahverfi". Við erum í miklu samstarfi í hverfinu um menningu, mál og læsi í Fellahverfi. Í tengslum við bæði þessi verkefni erum í samvinnu með talmeinafræðingum um málörvun barna og fræðslu fyrir starfsfólk og foreldra. Einnig erum við að vinna með tannvernd, að efla félagsfærni barna og Vináttuverkefnið um Blæ bangsa.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttafélags
Starfið er laust og starfshlutfall er 100%
Nánari upplýsingar um starfið veitir Halldóra B. Gunnlaugsdóttir, leikskólastjóri
Halldora.Bjorg.Gunnlaugsdottir@reykjavik.is / 693-9882
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.