Við leitum að skapandi og drífandi sérfræðingi í markaðssetningu til að ganga til liðs við öflugt markaðsteymi VÍS í afleysingu vegna fæðingarorlofs. Starfið hentar vel einstaklingi sem vill stíga sín fyrstu skref í starfi í markaðsdeild, öðlast dýrmæta reynslu og fá tækifæri til að vinna að fjölbreyttum og sýnilegum verkefnum fyrir eitt þekktasta vörumerki landsins.
Megináhersla starfsins er á efnissköpun samfélagsmiðla, en þú tekur jafnframt þátt í fjölbreyttum verkefnum markaðsdeildarinnar.
Ráðningartímabilið er frá 1. janúar 2027 til 15. nóvember 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntun og hæfni:
Það er kostur ef þú getur sýnt okkur dæmi um efni sem þú hefur skapað, hvort sem það er í starfi, námi eða eigin verkefnum.
Hjá VÍS færðu:
Nánari upplýsingar veitir Trausti Sigurður Hilmisson, forstöðumaður markaðsmála, í netfanginu traustih@vis.is.
Umsóknarfrestur er til og með 22.nóvember 2026. Við hvetjum öll sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um, óháð kyni. Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.