Við leitum að metnaðarfullum og faglegum teymisstjóra til íbúðakjarna fyrir fatlað fólk að Vættaborgum 82. Starfið er fjölbreytt og krefjandi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, valdeflandi stuðning, þjónandi leiðsögn og einstaklingsmiðaða þjónustu. Teymisstjóri gegnir lykilhlutverki í að leiða starfsfólk, styðja íbúa og þróa þjónustuna í samstarfi við forstöðumann. Starf teymisstjóra felur í sér bæði stjórnun og faglega forystu sem ásamt því að vinna að hluta til á vöktum í beinni þjónustu við íbúa.
Um fullt starf er að ræða.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Sigurborg Ö. Möller, forstöðumaður, í síma 824 2696 eða með tölvupósti á sigurborg.orvarsdottir.moller@reykjavik.is.