Við Brekkuskóla er laus 100% staða íþróttakennara frá 4. janúar 2027 og út skólaárið með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Vegna hlutlægra þátta sem tengjast starfinu í samræmi við 26. grein laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 er að þessu sinni sérstaklega óskað eftir konu.
Brekkuskóli, í samstarfi við heimilin, vinnur að því að búa nemendur undir líf og starf, að hjálpa þeim að finna og nýta hæfileika sína og stuðla að andlegu og líkamlegu heilbrigði þeirra. Í Brekkuskóla er mikil áhersla lögð á gott samstarf við foreldra. Brekkuskóli er uppbyggingarskóli og vinnur eftir agastjórnunar stefnunni Uppeldi til ábyrgðar.
Einkunnarorð skólans eru menntun - gleði - umhyggja - framfarir
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.brekkuskoli.is/
Leitað er að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Starfssvið:
Kennari sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsókninni skal fylgja greinargóð skýrsla um störf umsækjanda og menntun, kennslureynslu og þau verkefni sem hann hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfi kennara. Þá skal fylgja umsókninni greinagerð um hugmyndir umsækjanda og sýn hans á kennarastarfið og hvernig hann sér starf sitt sem kennara þróast.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri í síma 414-7900 eða á netfanginu johannam@akureyri.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2026.