Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í starf matráðs í 50% starfshlutfalli í útibú Íslandsbanka í Vestmannaeyjum.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 4. janúar 2027.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigursteinn Bjarni Leifsson, útibússtjóri í tölvupósti: sigursteinn.bjarni.leifsson@islandsbanki.is
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem hafa ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum áherslu á að skapa virði til framtíðar með traustum rekstri og framúrskarandi þjónustu.