Viltu vinna við vélbúnaðinn sem heldur virkjunum okkar gangandi?
Við hjá Orku náttúrunnar leitum að öflugum vélvirkja á vélaverkstæði virkjana okkar.
Í hlutverkinu færðu tækifæri til að vinna við fjölbreytt og krefjandi verkefni í framúrskarandi starfsumhverfi.
Starfið snýr að viðhaldi, viðgerðum og endurbótum á vélbúnaði og framleiðslutengdum kerfum í virkjunum ON.
Verkefnin eru fjölbreytt, allt frá reglubundnu viðhaldi og bilanagreiningum yfir í upptektir og nýframkvæmdir.
Þú verður hluti af öflugu fagteymi og vinnur náið með samstarfsfólki þínu á verkstæðinu, verkstjórum, ábyrgðaraðilum, sérfræðingum, rekstri og verktökum.
Helstu verkefni
Starfið felur meðal annars í sér að:
Hvað þarf til að ná árangri í starfinu?
Við leitum að vélvirkja sem hefur áhuga á að starfa í fjölbreyttu starfsumhverfi og vinnur verk sín af fagmennsku.
Á meðal þeirra eiginleika sem við leitum eftir eru:
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.
Við tökum jafnréttið alvarlega!
Við viljum hafa sem fjölbreyttastan hóp starfsfólks og hvetjum því öll kyn til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember 2026.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Birna Fossdal, deildarstjóri Viðhalds og verkstæðis, Kristin.Birna.Fossdal@on.is.
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Orka náttúrunnar framleiðir rafmagn og heitt vatn í jarðhitavirkjunum á Hellisheiði og Nesjavöllum ásamt framleiðslu rafmagns með vatnsafli í Andakílsárvirkjun.
ON er stærsta jarðvarmafyrirtæki landsins og selur rafmagn til fyrirtækja og heimila um allt land en framleiðir heitt vatn til sölu og dreifingar hjá systurfélagi þess, Veitum.
ON er dótturfélag Orkuveitunnar sem er í eigu Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar.
ON framleiðir ekki bara umhverfisvæna orku fyrir heimili, fyrirtæki og farartæki heldur leggur fyrirtækið einnig ríka áherslu á rannsóknir, nýsköpun og sjálfbærni með það fyrir augum að tryggja komandi kynslóðum betri lífsgæði.