Í Giljaskóla er laus til umsóknar um 75% tímabundin staða aðstoðarmatráðs. Vinnutími er frá kl. 9-15. Ráðið er í stöðuna frá 4. janúar 2027 til 17. desember 2027 eða samkvæmt samkomulagi.
Giljaskóli starfar eftir samskipta- og uppeldisstefnu sem nefnist Uppeldi til ábyrgðar - uppbygging sjálfsaga. Skólinn er heilsueflandi grunnskóli og réttindaskóli UNICEF.
Í skólanum er sérdeild sem sinnir kennslu og þjálfun barna með ýmiskonar fatlanir. Giljaskóli er framsækinn skóli, hefur verið í fararbroddi á sviði upplýsingatækni og er í mikilli þróun náms- og kennsluhátta.
Einkunnarorð Giljaskóla eru „Ábyrgð - Virðing - Vinsemd“.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.giljaskoli.is
Helstu verkefni eru:
Hæfniskröfur:
Starfsmenn skólans gegna starfinu samkvæmt grunnskólalögum, reglugerðum, starfslýsingum, kjarasamningum og mannauðsstefnu Akureyrarbæjar eftir því sem við á.
Tekið verður tillit til Mannréttindastefnu Akureyrarbæjar um jafnréttismál við ráðningu í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Einingar-iðju.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir launadeild Akureyrarbæjar: launadeild@akureyri.is
Allar nánari upplýsingar veitir Elías Gunnar Þorbjörnsson skólastjóri í s. 462-4820, netfang elias@akmennt.is
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum.
Aðgengi að tölvu og aðstoð vegna umsókna stendur til boða í Þjónustuveri Akureyrarbæjar Geislagötu 9.
Umsóknarfrestur er til og með 2. desember 2026.