Flugfélagið Atlanta ehf. leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi til starfa í Crew Resources deild félagsins.
Deildin annast skipulagningu mannafla, gerð og útgáfu vinnuskráa ásamt samskiptum við áhafnir. Um er að ræða fjölbreytt dagvinnustarf í lifandi starfsumhverfi þar sem skipulagshæfni, nákvæmni, sjálfstæði og góð teymisvinna eru lykilatriði.
Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2026