Heimili fyrir fatlað fólk í Kleifatúni á Sauðárkróki óskar eftir að ráða í 2-3 lausar stöður í 50%-85% starfshlutfalli. Bæði er um að ræða framtíðarstörf sem og tímabundna ráðningu vegna afleysinga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Heimilið sér um að veita fólki fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að styðja við sjálfstæða búsetu þess og skapa því aðstæður til að lifa sem eðlilegustu lífi á heimili sínu sem utan þess. Unnið er eftir ákveðinni hugmyndafræði og krafist er að starfsfólk tileinki sér þau vinnubrögð er henni fylgja.
Helstu verkefni eru:
Menntunar- og hæfniskröfur
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Steina Jósefsdóttir, forstöðumaður; 8643471, gudmundasteina@skagafjordur.is.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Prófskírteini og greinargóð ferilskrá skal fylgja umsókn.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.