Fjölskyldusvið Skagafjarðar auglýsir eftir að ráða í tímabundna 50%-85% stöðu á heimili fyrir fatlað fólk í Fellstúni, Sauðárkróki. Æskilegt væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst og unnið út janúar 2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Starfssvið:
Í starfinu felst að veita einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu við fatlaða einstaklinga við allar athafnir daglegs lífs innan sem utan heimilis. Stuðningurinn miðar að því að gera einstaklingum kleift að búa á eigin heimili, stunda virkni, sinna áhugmálum og njóta menningar og félagslífs. Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.
Hæfniskröfur:
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Steina Jósefsdóttir, forstöðumaður; 8643471, gudmundasteina@skagafjordur.is.
Einungis er tekið við rafrænum umsóknum á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf).
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.